Fara í efni

Grunur um Salmonella í kjúklingabringum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingabringum frá Esju Gæðafæði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin á eingöngu við framleiðslulotu 23205.

  • Vörumerki: Kjötsel
  • Vöruheiti: Kjúklingabringur grilltvenna úrb marineruð
  • Framleiðandi: Esja Gæðafæði Bitruhálsi 2 110 Reykjavík
  • Lota: 23205
  • Strikamerki: 2395041
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Geymsluþol: Best fyrir 01.08.2023
  • Dreifing: Nettó verslanir

Neyt­end­um sem keypt hafa vör­una er bent á að þeir geta skilað vörunni í viðkomandi verslanir eða til Esju Gæðafæðis, Bitruhálsi 2, 110 Reykjavík. Esja Gæðafæði biður neyt­end­ur vel­v­irðing­ar á þeim óþæg­ind­um sem af þessu get­ur skap­ast.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?