Fara í efni

Göt á sjókví í Arnarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi fimmtudaginn 2. apríl um þrjú göt á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Hringsdal í Arnarfirði.

Götin uppgötvuðust seinni partinn 2. apríl þegar verið var að sækja fisk til slátrunar, nótarpoki var hífður upp og tóku starfsmenn eftir götunum og gerðu við þau. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax voru rifurnar á 1,5 m dýpi og var lengd þeirra 20 cm, 50 cm og 100 cm lóðrétt niður nótarpokann. Í kvínni voru um 88.500 laxar með meðalþyngd 7,9 kg. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt 19. mars sl. og var nótarpoki þá heill.

Matvælastofnun hefur kallað eftir gögnum og upplýsingum er varða viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið til meðferðar hjá stofnuninni.  Arnarlax lagði út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað. Netanna var vitjað um helgina, enginn lax veiddist og liggja net enn úti. Veiðum verður hætt í dag.


Getum við bætt efni síðunnar?