Fara í efni

Glerbrot í Ora sinnepssíld 335 g

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á einni framleiðslulotu af síldarkrukku úr gleri. Fyrirtækið ÍSAM hefur ákveðið að taka úr sölu og innkalla eina framleiðslulotu af Ora Sinnepssíld 335g eftir að það fannst glerbrot í einni krukkunni.

Upplýsingar um vöruna:

Vöruheiti: Ora Sinnepssíld í bitum

Strikamerki: 5690519000599

Nettóþyngd: 335 g

Framleiðsludagur: 31.05.2017

Lotunúmer: L2B146

Best fyrir (BF): 30.11.2017

Framleiðandi: Ora ehf

Neytendum sem keypt hafa vöruna með þessu lotunúmeri er bent á að skila henni til ÍSAM, Tunguhálsi 11, 110 Reykjavík eða hafa samband við gæðastjóra Ora í síma 522 2770 eða á netfangið helgam@ora.is.

 Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?