Fara í efni

Gat á sjókví í Arnarfirði - Uppfært 8.11.2021

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlax mánudaginn 30. ágúst um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði.

Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á um 2 m dýpi og reyndist vera um það bil 2x2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000 laxar með meðalþyngd 0,8 kg. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt 31. júlí sl. og var nótarpoki þá heill.

Eftirlitsmaður Matvælastofnunar hefur skoðað aðstæður og viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið til meðferðar hjá stofnuninni. Arnarlax lagði út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað. Netanna var vitjað síðdegis á mánudag og þriðjudag. Á mánudag komu tveir fiskar í netin sem reyndust að öllum líkindum sjóbirtingar og á þriðjudag veiddist einn lax sem var rúm 2 kg. Fiskarnir verða sendir til Hafrannsóknastofnunar til greiningar. 

Uppfært 8.11.2021

Við DNA greiningu var hægt að tengja strokulaxinn við hæng með kóða E3 en hrogn undan þeim hæng fóru til klak- og seiðastöðvar Arnarlax að Gileyri við Tálknafjörð þann 10. júlí 2019. Þaðan voru seiðin flutt í fjórum ferðum í sjókvíar við Haganes á tímabilinu 17. september til 4. október 2020. Seiðin voru þá á bilinu 95 til 135g og voru sett í kvíar 5, 11, 12 og 13.

Það er því hægt að fullyrða að laxinn sem veiddist í net við Haganes eftir að gat kom á kví nr. 11 var sannarlega úr þeirri kví. Stærð strokulaxins reyndist vera 51.5 cm og 1.300g

 


Getum við bætt efni síðunnar?