Fara í efni

Framhaldsrannsókn staðfestir mikið magn arsens í hrísgrjónavörum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í gær birti sænska matvælastofnunin (Livsmedelsverket) nýja skýrslu um rannsókn á arseni í hrísgrjónum og hrísgrjónavörum á sænskum markaði. Þessi rannsókn var gerð í framhaldi af niðurstöðum rannsóknar á þungmálmum í barnamat og ungbarnablöndum þar sem kom í ljós að arsen var í miklu magni í hrísgrjónavörum, sérstaklega hrísgrjónadrykkjum. Matvælastofnun vinnur að því að uppfæra ráðleggingar stofnunarinnar til neytenda um arsen m.t.t. til niðurstaðna þessarar framhaldsrannsóknar.

Tekin voru 102 sýni af m.a. hrísgrjónum (basmati, jasmine, long grain og hýðishrísgrjónum), hrísgrjónakökum, grjónagraut, morgunkorni, hrísgrjónadrykkjum og glútenfríu brauði, núðlum og glútenfríu pasta. Sýnin voru úr vörum frá öllum helstu framleiðendum auk þess að tekin voru sýni af lífrænum vörum.

Tvennt áhugavert kom í ljós í rannsókninni:

  • Vörur sem seldar eru sem glútenfríar og innihalda mikið af hrísgrjónamjöli reyndust ekki innihalda arsen í miklu magni. 
  • Rannsóknin staðfestir að það hefur ekki áhrif þó notaðar séu lífrænar ræktunaraðferðir því arsen er náttúrulega í bergi í mjög mismiklu magni eftir landsvæðum og berst þaðan í grunnvatn. Því getur verið munur milli héraða og jafnvel milli akra.  

Helsta niðurstaða sænsku matvælastofnunarinnar eru að arsen er til staðar í öllum hrísgrjónum þó í mismiklu magni sé. Þess vegna ráðleggja sérfræðingar að: 

  • Börnum undir 6 ára aldri séu ekki gefnar rískökur þar sem þær innihalda mesta magnið af arseni. 
  • Börn ættu ekki að borða hrísgrjón eða hrísgrjónavörur oftar en 4 sinnum í viku. 
  • Fullorðnir ættu ekki að borða hrísgrjón eða hrísgrjónavörur á hverjum degi. 
  • Brún hrísgrjón innihalda mesta arsenið. Þrátt fyrir að almenna ráðleggingin sé að neyta heilkorna vöru, heilsunnar vegna á það ekki við hrísgrjón. Svíar ráðleggja að borða brún hrísgrjón bara stöku sinnum. 

Íslendingar borða að miklu leyti sömu hrísgrjónavörur og Svíar. Matvælastofnun mun nú leggjast yfir skýrsluna til að meta hvort sænsku ráðleggingarnar eigi við á Íslandi.

Arsen finnst í mismiklu magni í bergi. Efnið berst í grunnvatn og með vatninu í plöntur. Hrísgrjónaplantan er vatnsfrek og safnast arsen upp í meiri mæli í hrísgrjónum en í öðrum korntegundum. Magnið getur verið mjög breytilegt eftir landsvæðum og jafnvel milli akra í sama héraði. Vinnu innan Evrópusambandsins við að skilgreina hámarksgildi fyrir arsen í hrísgrjónum er lokið og reglugerð er væntanleg sem búist er við að taki gildi 1.janúar 2016. Frá þeim tíma mun vera hægt að grípa til aðgerða ef arsen greinist yfir hámarksgildi og fjarlægja vöru af markaði.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?