Fara í efni

Fræðslufundur: Reglur um erfðabreytt matvæli

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun heldur fræðslufund um erfðabreytt matvæli þriðjudaginn 22. febrúar kl. 15:00 - 16:00.Á fundinum verður fjallað um reglugerð um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Fjallað verður um hvaða matvæli og fóður falla undir reglugerðina, hverjar eru algengustu erfðabreyttu nytjaplönturnar og tekin verða dæmi um erfðabreytt matvæli unnin úr þeim. 
  
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku af fundinum á vef MAST undir ÚTGÁFA - FRÆÐSLUFUNDIR.

Fyrirlesari:

    Helga M. Pálsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!

Getum við bætt efni síðunnar?