Fara í efni

Fagsviðsstjóri á matvæla- og neytendasviði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun óskar eftir að ráða matvælafræðing í starf fagsviðsstjóra á neytenda- og matvælasviði. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi.

Helstu verkefni:
•    Umsjón og ábyrgð á útgáfu fræðsluefnis á sviðinu
•    Umsjón eftirlits með aukefnum og bragðefnum í matvælum
•    Umsjón eftirlits með efnum og hlutum sem komast í snertingu við matvæli
•    Samskipti við neytendur, hagsmunaaðila og eftirlitsaðila
•    Vinna við matvælalöggjöf
•    Samskipti við erlendar stofnanir
•    Önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:
•    Háskólapróf í matvælafræði
•    Reynsla af eftirliti og opinberri stjórnsýslu
•    Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
•    Skipulags- og samskiptahæfileikar
•    Góð tölvu- og tungumálakunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Örn Hansson (sigurdur.hansson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.hannesson@mast.is) og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “matvælafræðingur” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2008. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.

Matvælastofnun tók til starfa 1. janúar 2008 og tók þá yfir verkefni Landbúnaðarstofnunar, matvælasviðs Umhverfisstofnunar og matvælaeftirlitssviðs Fiskistofu. Matvælastofnun sinnir stjórnsýslu, eftirliti og þjónustu við íslenskan landbúnað og sjávarútveg, fyrirtæki og neytendur. Hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að öryggi matvæla og neytendavernd, standa vörð um heilbrigði dýra og plantna, stuðla að aukinni velferð dýra, hafa eftirlit með áburði, fóðri, sáðvöru og veiði í ám og vötnum, sinna stjórnsýslu vegna kjötmats, almenns búfjáreftirlits og búvara. Starfsmenn eru um 75 talsins. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðu stofnunarinnar, www.mast.is.


Getum við bætt efni síðunnar?