Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi Arctic Sea Farm hf. Arnarfirði
Matvælastofnun auglýsir tillögu að breytingu á rekstrarleyfi FE-1159. Arctic Sea Farm hf. í Arnarfirði. Um er að ræða breytingu á seiðastærð þar sem rekstraraðila verður heimilt að setja út 60g seiði í stað 120g seiða.
Arctic Sea Farm hf. fór með breytingu á seiðastærð í matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun tók ákvörðun þann 8. júlí 2025 um að breytingin væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Ákvæði í rekstrarleyfi þar sem segir „Frjó seiði sem sett eru út í kvíar skulu vera yfir 120g.“ verður eftir breytinguna „Frjó seiði sem sett eru út í kvíar skulu vera yfir 60g.“ Einnig verður leyfið uppfært til samræmis við nýjustu leyfi Matvælastofnunar er snýr m.a. að lögum og reglugerðum, vísun í strandsvæðisskipulag og skilyrði.
Breytingin eykur sveigjanleika á stærð seiða við útsetningu og er til samræmis við sambærileg leyfi á svæðinu ásamt því að vera í samræmi við gildandi áhættumat erfðablöndunar. Rekstraraðili hyggst einungis áforma að nota heimildina í undantekningartilfellum en meðal stærð útsettra seiða hafi verið um 151g 2024 og muni aukast á næstu árum.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merkt 2511812. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 12. febrúar 2026.
Ítarefni