Útgáfa á breyttu leyfi Kaldvíkur hf. Lóni, Kelduhverfi
Frétt -
21.10.2026
Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu rekstrarleyfi Kaldvíkur hf. að Lóni í Kelduhverfi. Breytingin heimilar notkun á frjóum laxahrognum frá framleiðandanum AquaGen.
Kaldvík hf. sótti um breygingu á rekstrarleyfi FE-1189 þann 7. júní 2026. Tillaga að breytingu á leyfinu var auglýst á tímabilinu 25. ágúst til og með 23. september 2026. Matvælastofnun bárust athugasemdir frá tveimur aðilum á auglýsingatíma, gerð er grein fyrir þeim í greinargerð sem fylgir útgáfunni.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.
Ítarefni