Fara í efni

Eftirlit með áburði 2014

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur birt skýrslu um niðurstöður áburðareftirlits á árinu 2014. Alls stóðust 9 tegundir áburðar af 41 ekki kröfur um efnainnihald vegna ýmist of lítils magns næringarefna eða of mikils magns kadmíums. 

Við efnamælingar kom í ljós að átta áburðartegundir voru með of lágt næringarefnainnihald miðað við það sem kom fram á umbúðum. Þar af var ein með of lítið köfnunarefni, ein með of lítinn fosfór ein með of lítið kalí og átta með of lítinn brennistein. Í nokkrum tilfellum voru fleiri en eitt næringarefni undir leyfðum vikmörkum. Ein tegund var með of mikið kadmíuminnihald samkvæmt ákvæðum reglugerða. Um óverulegt magn var að ræða eða innan við 0,1% af innfluttum áburði. Einn kaupandi hafði keypt vöruna og var hann upplýstur um niðurstöður efnagreininga þegar þær lágu fyrir. Allar þessar áburðartegundir hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Ekki verður heimilt að dreifa þessum áburðartegundum til notenda við næsta innflutning fyrr en efnagreining á vegum stofnunarinnar sýnir fram á að áburðurinn uppfylli kröfur. 

Allar niðurstöður miðast við uppgefin gildi við skráningu og samkvæmt merkingum á umbúðum. Sýnataka og vöruskoðun var gerð hjá 5 innflutningsfyrirtækjum og voru alls 45 áburðarsýni af 41 áburðartegund tekin á árinu. Auk þess voru merkingar og umbúðir skoðaðar. 

Fáar athugasemdir voru gerðar við merkingar, en helstu gallar voru vegna misræmis milli skráninga og merkinga. Einnig voru merkingar máðar í nokkrum tilfellum. Þá voru gerðar athugasemdir ef merkingar voru ekki á íslensku.

Á árinu fluttu 23 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni alls 273 tegundir. Alls voru flutt inn 60.961 tonn. Innlendir framleiðendur eru 14 á skrá, það eru fyrirtæki sem framleiða áburð eða jarðvegsbætandi efni á landinu. Áburðarfyrirtæki sem voru með skráða starfsemi á árinu eru því 37. Sjö fyrirtæki fluttu inn áburð og jarðvegsbætandi efni til jarðræktar, alls 80 tegundir og heildarmagn var 60.420 tonn.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?