Breytingar á gjaldskrám Matvælastofnunar
Frétt -
05.04.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun vekur athygli á breytingum á gjaldskrám Matvælastofnunar. Gjaldskrá fyrir eftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvælastofnunar hefur verið uppfærð með nýrri reglugerð. Sama á við um gjaldskrá vegna umsókna fyrir framleiðslu, markaðssetningu eða innflutning matvæla með íblönduðu koffíni og vegna vinnslu og heilbrigðiseftirlits með hvalaafurðum.
Meðal breytinga eru:
- Tímagjald fyrir áhættuflokkað eftirlit hækkar úr 23.375 kr í 24.544 kr.
- Almennt tímagjald hækkar úr 9.350 kr í 9.818 kr.
- Fast akstursgjald fyrir eftirlit hækkar úr 3.300 kr í 3.600 kr.
Með þessum breytingum falla fyrri gjaldskrár um sama efni úr gildi.