Fara í efni

Áminning vegna afrískrar svínapestar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vill minna á að enn hefur ekki tekist að hefta útbreiðslu afrískrar svínapestar í Evrópu, Asíu og Afríku. Alþjóða dýraheilbrigðisstofnunin hvetur ferðafólk, bændur, veiðimenn, tollverði o.fl. til að gæta árvekni og smitvarna. Afrísk svínapest er bráðsmitandi drepsótt í svínum, sem getur m.a. borist með sýktum svínum og sæði, hráu kjöti af sýktum dýrum, farartækjum, búnaði, fatnaði o.fl. Veiran sem veldur sjúkdómnum er ekki hættuleg fyrir fólk eða önnur dýr en veldur svínum þjáningum og tjón svínabænda þar sem sjúkdómurinn kemur upp er gífurlegt.

Miklar varúðarráðstafanir eru viðhafðar í Evrópu til að hefta útbreiðsluna og þar hefur ástandið verið nokkuð stöðugt. Þó var tilkynnt um ný og viðvarandi tilfelli í átta löndum í Evrópu (Belgíu, Ungverjalandi, Búlgaríu, Lettlandi, Moldavíu, Póllandi, Rúmeníu og Úkraínu) frá 1.-14. febrúar. Á sama tímabili bárust tilkynningar um sjúkdóminn frá tveimur stöðum í Asíu (Kína og Mongólíu) og einum í Afríku (Zimbabwe). Sjá hér: African Swine Fever (ASF) - Report N° 10: February 1 - 14, 2019

Alþjóða dýraheilbrigðisstofnunin hefur hafið auglýsingaherferð til að upplýsa fólk um smitleiðir og áminna það um að gæta smitvarna. Skilboðin eru eftirfarandi:

  • Ferðafólki er bent á að flytja ekki með sér lifandi svín né svínaafurðir og heimsækja ekki svínabú að nauðsynjalausu. 
  • Bændur eru hvattir til að viðhafa ýtrustu smitvarnir, sem fela í sér þrjá megin þætti: Aðskilnað, þrif og sótthreinsun. Þeir þurfa að halda aðskilnaði milli þess sem er utandyra og innanhúss, gæta þess að smit berist ekki í fóður og vatn, hafa stranga stjórn á aðgangi og umgangi gesta og starfsfólks á búinu og halda svínum sem koma ný inn á búið aðskildum frá þeim sem fyrir eru. Allt sem fer inn á búið og út af því skal þrifið þannig að öll sjáanleg óhreinindi séu fjarlægð og síðan sótthreinsað. Jafnframt eru bændur minntir á að fóðra ekki svínin með matarúrgangi.
  • Veiðimenn sem eru reglulega í snertingu við svín ættu ekki að stunda veiðar á villtum svínum. En tilmæli til þeirra sem fara á veiðar eru m.a. að þrífa og sótthreinsa tæki á staðnum, fara ekki á svínabú að nauðsynjalausu og deila ekki matvælum sem framleidd eru úr kjöti af veiddum dýrum með öðrum né fóðra dýr með þeim.
  • Tollverðir eru beðnir um að kynna sér í hvaða löndum afríska svínapestin er til staðar hverju sinni og að vera sérstaklega vel á verði fyrir því hvort fólk komi með matvæli frá þessum löndum. Öllum vörum sem geta innihaldið smitefnið skal fargað á viðeigandi hátt.

Hver sem verður var við einkenni í dýrum sem geta bent til alvarlegra smitandi sjúkdóma, þar á meðal afrískrar svínapestar, skulu án tafar hafa samband við dýralækni eða Matvælastofnun.

Myndband þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi afríska svínapest má finna hér.

Ítarefni

Til áminningar fyrir ferðafólk
Til áminningar fyrir bændur
Til áminningar fyrir veiðimenn
Til áminningar fyrir tollverði


Getum við bætt efni síðunnar?