Fara í efni

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 2015 - Matvælaöryggi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er í dag, 7. apríl og er dagurinn að þessu sinni tileinkaður matvælaöryggi. Matvæli sem innihalda skaðlegar örverur eða efni valda meira en 200 sjúkdómum allt frá niðurgangi að krabbameini og er áætlað að um 2 milljónir manna deyi af völdum óöruggra matvæla á ári hverju. Matvælastofnun vekur athygli neytenda á ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um leiðir fyrir neytendur til að auka öryggi matvæla.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur haldið Alþjóðaheilbrigðisdaginn hátíðlegan árlega þann 7. apríl frá árinu 1950. Í hvert skipti er valið þýðingarmikið málefni til vitundarvakningar og er dagurinn í ár tileinkaður matvælaöryggi. Í tilefni þess hefur stofnunin gefið út 5 leiðir til að stuðla að öruggari matvælum sem Matvælastofnun vekur athygli neytenda á:

1. Huga að hreinlæti

  • Þvoið hendur áður en matur er meðhöndlaður og oft á meðan á matreiðslu stendur
  • Þvoið hendur eftir að þið farið á salernið
  • Þvoið alla fleti sem matvæli koma til með að snerta á meðan á matreiðslu stendur
  • Haldið skordýrum og öðrum dýrum frá matreiðslusvæðum

2. Aðskilja eldaðan mat og hráan

  • Aðskiljið hrátt kjöt og hráan fisk frá öðrum mat
  • Notið sér eldhúsáhöld s.s. hnífa og skurðarbretti fyrir hrátt kjöt/hráan fisk
  • Geymið mat í umbúðum til að hrátt kjöt komist ekki í beina snertingu við tilbúin matvæli

3. Elda í gegn

  • Munið að elda mat í gegn, einkum kjöt, egg og sjávarfang
  • Látið matvæli eins og súpur og kássur ná suðu til að tryggja að þau nái 70°C
  • Verið viss um að vökvi úr kjöti sé glær en ekki bleikur
  • Hitið endurhitaðan mat vel

4. Geyma mat við rétt hitastig

  • Ekki skilja eldaðan mat eftir í stofuhita í meira en tvær klukkustundir
  • Kælið eldaðan mat eins fljótt og kostur er (helst <5°C)
  • Haldið elduðum mat heitum (>60°C) þar til hann er borinn á borð
  • Ekki geyma mat of lengi þó svo hann sé í ísskápnum
  • Ekki afþíða frosinn mat í stofuhita

5. Nota öruggt vatn og hráefni

  • Notið öruggt vatn
  • Veljið ferskar og heilbrigðar matvörur
  • Veljið matvæli sem unnin eru með matvælaöryggi í huga, s.s. gerilsneydda mjólk
  • Þvoið grænmeti og ávexti, einkum ef borða á hrátt
  • Forðist að borða útrunnar matvörur

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?