Fara í efni

Álagning plöntueftirlitsgjalds dæmd ólögmæt

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Íslenska ríkið var nýlega dæmt  í héraði til að endurgreiða innflutningsfyrirtæki á sviði matvöru tæpar 40 milljónir króna auk vaxta. Ástæðan var sú að tilhögun í reglugerð varðandi gjaldtöku til að standa undir kostnaði við eftirlit með innflutningi plantna og plöntuafurða reyndist ekki eiga sér lagastoð að mati dómsins.

Málið snerist um eftirlitsgjald af innflutningi plantna og plöntuafurða en umrætt fyrirtæki er umfangsmikill innflytjandi og dreifingaraðili ávaxta og grænmetis á Íslandi. Þessi innflytjandi stefndi íslenska ríkinu og fór fram á að fá endurgreiddar tæpar 40 milljónir kr. auk vaxta vegna ólöglegrar gjaldtöku Matvælastofnunar árin 2011 - 2014. Dómurinn féllst á þessa kröfu að öllu leyti.

Í reglugerðinni segir að innflytjendur skulu greiða 2% eftirlitsgjald af ákveðnum vöruflokkum en 1% af öðrum. Samkvæmt lögum um þetta efni og almennum reglum um þjónustugjöld ríkisins mega tekjur af gjaldi sem þessu ekki vera hærri en svo að þær standi einungis straum af kostnaði við þá þjónustu eða eftirlitsaðgerð sem gjaldtökuheimildin nær til. Stjórnvaldi er einungis heimilt að taka gjald fyrir beinan kostnað eða kostnað sem stendur í nánum, efnislegum tengslum við þá þjónustu sem gjaldið á að standa straum af kostnaði við samkvæmt gjaldtökuheimildinni.

Gangi gjaldtakan lengra að þessu leyti er hún orðin að skatti eða tolli sem sérstaka lagaheimild þarf fyrir. Engri slíkri heimild var til að dreifa í þessu tilviki. Ekki þóttu vera nægilega bein tengsl á milli þessa plöntueftirlitsgjalds og raunkostnaðar Matvælastofnunar við eftirlitið.

Meðal annars af þessum ástæðum var gjaldtakan dæmd ólögmæt.

Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögmanns hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort málinu verður áfrýjað.


Getum við bætt efni síðunnar?