Fara í efni

Aðskotahlutur í salati

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Veislusalati með uppruna frá Ítalíu sem Hollt og gott flytur inn vegna aðskotahlutar (hluti af fuglsvæng). Fyrirtækið hefur hafið innköllun á salatinu í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Matvælastofnun fékk upplýsingar frá neytanda um málið og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Hollt og gott
  • Vöruheiti: Veislusalat
  • Strikamerki: 5690350037822
  • Nettómagn: 100g
  • Best fyrir dagsetning: 21.11.2020
  • Innflytjandi: Hollt og gott, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
  • Dreifing: Krónan, Hagkaup, Melabúðin, Fjarðarkaup, Rangá, Seljakjör og Kaupfélag Skagfirðinga

Hollt og gott salat

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila henni í verslunina þar sem hún var keypt eða til Hollt og gott gegn fullri endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?