Aðdróttun um mútuþægni kærð til lögreglunnar á Norðurlandi eystra
Forstjóri og tveir starfmenn Matvælastofnunar hafa sent kæru á hendur einstaklingi til lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Kæran er send vegna greinar sem birtist á vefmiðli Vísis, visir.is, 16. júlí síðastliðin. Í greininni segir að starfsfólk stofnunarinnar skaki sér í skrifstofustólum svo skrjáfi í seðlunum sem norskir auðkýfingar hafi stungið í vasa þeirra um leið og þeir skrifi upp á rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi þrátt fyrir mótmæli Vegagerðarinnar og Landhelgisgæslunnar.
Matvælastofnun vinnur faglega að umsóknum um rekstraleyfi til fiskeldis og veitir rekstrarleyfi til fiskeldis ef umsóknir uppfylla skilyrði laga og reglugerða, samkvæmt hlutverki stofnunarinnar. Forstjóri stofnunarinnar og starfsmenn sem komu að meðferð og útgáfu rekstrarleyfisins telja að með framkominni aðdróttun sé alvarlega vegið að heiðri og æru þeirra og því verði ekki komist hjá öðru en að kæra skrifin til lögreglu.