Fara í efni

Sérgreinadýralæknir hrossa

Viltu byggja upp sérþekkingu um heilsu íslenskra hrossa og stuðla að velferð þeirra?

Matvælastofnun leitar að leiðandi sérfræðingi í heilsu og velferð hrossa. Starfið felur í sér yfirumsjón með forvörnum, eftirliti og viðbrögðum við smitsjúkdómum og öðrum sjúkdómum sem ógnað geta velferð og viðgangi íslenska hrossastofnsins, sem og faglega umsjón með eftirliti með velferð hrossa og aðgerðum þar að lútandi. Þá felur starfið í sér þátttöku í stefnumótun og markmiðasetningu innan stofnunarinnar, auk annara verkefna.

Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi eða annarri starfstöð utan höfuðborgarsvæðisins.

Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með heilbrigði og velferð hrossa og talsmaður málaflokksins
  • Áhættumat, forvarnir og viðbragðsáætlanir vegna smitsjúkdóma í hrossum
  • Umsjón með árlegri sýnatökuáætlun og eftirfylgni
  • Frumkvæði að upplýsingaöflun, úrvinnslu gagna og gerð fræðsluefnis um heilsu og velferð hrossa
  • Samræming, áherslur og rýni eftirlits með velferð hrossa og þjálfun eftirlitsfulltrúa
  • Ritstjóri gæðahandbókar og faglegur leiðtogi aðgerðateyma vegna velferðar og smitsjúkdóma
  • Þátttaka í innlendu- og erlendu samstarfi ásamt skýrslugerð
  • Vinna við lög og reglugerðir ásamt ráðgjöf til annarra stofnanna

Hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun og gilt starfsleyfi á Íslandi
  • Sérfræðiþekking á smitsjúkdómum hrossa og/eða mikil starfsreynsla á því sviði
  • Yfirgripsmikil þekking á umhirðu og meðferð hrossa, almennu heilbrigði þeirra, atferli og velferð
  • Góða almenn tölvukunnátta og úrvinnsla og framsetning gagna á stafrænu formi
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Öguð vinnubrögð, góðir skipulagshæfileikar og geta til að starfa sjálfstætt og í teymi eru áskilin
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.

Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsustyrkur ofl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur viðburði.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknin gildir í sex mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2025

Nánari upplýsingar veitir

Egill Þorri Steingrímsson

Sviðsstjóri samhæfingar

Tölvupóstur: egill.steingrimsson@mast.is

Sími: 530 4800


Getum við bætt efni síðunnar?