Leiðandi sérfræðingur - neysluvatn og hollustuhættir
Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf leiðandi sérfræðings neysluvatns og hollustuhátta, í matvæladeild samhæfingarsviðs stofnunarinnar. Viðkomandi einstaklingur yrði hluti af teymi sérfræðinga á sviði almennra hollustuhátta. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi eða annarri starfstöð stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins.
Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með málaflokknum um neysluvatn
- Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis fyrir eftirlitsfólk, matvælafyrirtæki og neytendur
- Aðkoma að gerð eftirlitsáætlana ásamt stjórnun eða aðkoma að átaks- og umbótaverkefnum
- Gæðatengill deildar, gerð og viðhald gæðaskjala
- Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir, vöktun löggjafar og þróun málaflokka
- Innleiðing löggjafar í málaflokkum
- Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð
- Fræðsla og upplýsingagjöf innan sem utan stofnunar
Hæfniskröfur
- Matvælafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla eða þekking á matvælaeftirliti kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulagsfærni og góð almenn tölvukunnátta
- Frábær samskipta- og samstarfshæfni ásamt vilja til að starfa í teymi
- Íslenskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Enskufærni i málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammnum
Frekari upplýsingar um starfið
Sótt er um á Starfatorgi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsuræktarstyrkur ofl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur viðburði af og til.
Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, afrit af prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2025