Leiðandi sérfræðingur - matvælasvindl og rýni eftirlits
Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf leiðandi sérfræðings - matvælasvindl og rýni eftirlits, í matvæladeild samhæfingarsviðs stofnunarinnar. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi eða annarri starfstöð stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins.
Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með málaflokknum um matvælasvindl
- Innleiðing aðferða við eftirlit og rannsóknir á matvælasvindli
- Eftirlit með markaðssetningu matvæla á netinu
- Stjórnun eða aðkoma að átaks og umbótaverkefnum
- Innleiðing og framkvæmd reglubundins rýnis og sannprófun á skilvirkni matvælaeftirlits
- Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð
- Samskipti við hagaðila og aðrar stofnanir
- Vöktun á löggjöf og þróun starfssviðs, þ.m.t. erlendu samstarfi
- Fræðsla og upplýsingagjöf innan og utan stofnunar
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á matvælaeftirliti er kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulagsfærni og góð almenn tölvukunnátta
- Frábær samskipta- og samstarfshæfni ásamt vilja til að starfa í teymi
- Íslenskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Enskufærni i málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammnum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsuræktarstyrkur o.fl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi.
Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, afrit af prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sótt er um á Starfatorgi.
Katrín Guðjónsdóttir
deildarstjóri
Tölvupóstur: katrin.gudjonsdottir@mast.is
Sími: og í síma 530-4800