Fara í efni

Varnarefni í frosnum jarðarberjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum jarðarberjum þar sem þau innihalda varnarefnið omethoate yfir mörkum. Samkaup sem flutti vöruna inn hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja innkallað vöruna. 

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Great Taste
  • Vöruheiti: Strawberry
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 28.07.2023
  • Nettómagn: 1.200 g
  • Strikamerki: 5706911001123
  • Framleiðandi: Framleitt fyrir Geia Food í Danmörku
  • Framleiðsluland: Kína
  • Dreifing:  Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?