Fara í efni

Vanmerktur ofnæmisvaldur í Stjörnu Prótein poppi (mjólk)

Matvælastofnun varar neytendur við sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk við Stjörnu prótein poppi Salted caramel. Varan inniheldur mjólk sem er ekki gefin upp í innihaldslista. Fyrirtækið Iðnmark hf hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF), innkallað vöruna. 

Eftirfarandi framleiðslulotur eru innkallaðar:

  • Vörumerki: Stjörnu
  • Vöruheiti: Prótein popp Salted Caramel
  • Framleiðandi: Iðnmark hf
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: BF. 03.11.26, 20.10.26 og 05.10.26
  • Geymsluskilyrði: Á þurrum stað við stofuhita
  • Dreifing: Krónan, Hagkaup og verslanir Samkaupa.

Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk skulu ekki neyta vörunnar heldur farga eða
skila í verslun til að fá endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?