Vanmerktur ofnæmisvaldur í Voga ídýfu krydd (hveiti)
Innkallanir -
16.07.2026
Matvælastofnun varar neytendur við sem hafa ofnæmi fyrir hveiti við Voga ídýfu krydd sem hafa best fyrir dagsetningu 30.10.2026 eða fyrr. Vörurnar innihalda hveiti en það er ekki merkt á umúðum varanna. Mjólkursamlag KS, sem framleiðir vörurnar hefur í samráði við Matvælastofnun, innkallað vörurnar.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Voga ídýfa
- Vöruheiti: Voga ídýfa krydd 175g og 400ml
- Framleiðandi: Mjólkursamlag KS, Sauðárkróki.
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: BF 28.07.2026 til og með 30.10.2026. Lotunúmer frá 26-0744 til 26-1630.
- Geymsluskilyrði: Kælivara
- Dreifing: Allar helstu verslanir
Viðskiptavinum með ofnæmi-eða óþol fyrir hveiti er bent á að farga vörunni eða skila í þá verslun sem hún var keypt í gegn endurgreiðslu.

