Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í súkkulaðibitaköku (mjólk)

Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir mjólk að neita súkkulaðibitakökur frá Gæðabakskri ehf. vegna vanmerkinga. En varan inniheldur mjólk sem ekki er getið um á innihaldslýsingu vörunnar. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkallað vöruna,

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Gæðabakstur
  • Vöruheiti: Súkkulaðibitakaka
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar frá 04.07.2026 til 14.07.2026.
  • Strikamerki: 5690896004098
  • Nettómagn: 100 g
  • Framleiðandi: Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar um allt land og verslanir Mini Market í Hafnarfirði og Reykjavík. 

Neytendur sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til
verslunarinnar. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?