Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í sósu (soja og sellerí)
Innkallanir -
14.07.2026
Matvælastofnun varar neytendur við sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja eða sellerí við Hagkaups Hambó sósu Smash style sem framleiddar eru fyrir 10.07.2026. Varan var vanmerkt og sellerí og soja voru ekki á innihaldslýsingu. Fyrirtækið Myllan-Ora hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) innkallað vöruna. Og allar sósur sem seldar eru eftir 11.07.2026 hafa verið endurmerktar.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: HAGKAUP
- Vöruheiti: HAGKAUP Hambó sósa Smash Style
- Framleiðandi: ORA Gunnars (Myllan-Ora ehf.) kt 660169-1729
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: BF. 04.10.2026
- Geymsluskilyrði: Kælivara
- Dreifing: verslanir Hagkaupa

Ef þú keyptir vöruna fyrir 10.07.2026 er hún vanmerkt. Þú getur skilað henni í næstu
Hagkaupsverslun og fengið hana endurgreidda.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Smash
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu HEF
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook