Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í pálmasykri

Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir súlfíti við Madam Wong pálmasykri sem er vanmerktur og ekki getið í innihaldslýsingu. Innflytjandi Lagsmaður ehf. (fiska.is) hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarna framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Madam Wong
  • Vöruheiti: Palm sugar 454g
  • Best fyrir: 25.12.2026
  • Nettómagn: 454 g
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Framleiðandi: Madame Wong, 8 Karnchapisek Rd. Bangbon Bangkok, Thailand
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf. (Fiska.is), Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
  • Dreifing: Verslun Fiska.is

Viðskiptavinum með súlfit ofnæmi-eða óþol er bent á að farga vörunni eða skila til verslun Fiska Nýbýlavegi 6.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?