Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í pálmasykri
Innkallanir -
22.05.2025
Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir súlfíti (brennisteinsdíoxíði) við neyslu á einni lotu af pálmasykri frá Thai dancer vegna þess að súlfítið kemur ekki fram í merkingum vörunnar. Fyrirtækin Dai Phat ehf. í Reykjavík og Kina Panda í Reykjanesbæ hafa hafa innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Suðurnesja.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Thai Dancer
- Nafn vöru: Palm sugar
- Pakkning: 200g
- Batch no: 240524
- Best fyrir: 24/05/2026
- Framleiðsluland: Taíland
- Innflytjandi: Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14 /Kína Panda ehf., Hafnargötu 90, Reykjanesbæ
- Dreifing: Verslanir Dai Phat Asian supermarket og Kina Panda ehf.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða skila henni í
þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í
númerið 765-2555.
Ítarefni
- Fréttatilkynning heilbrigðiseftirlits í Reykjavík
- Fréttatilkynning heilbrigðiseftirlits í Reykjanesbæ
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook