Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í rjómalíki

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Eðal ehf. Katla hefur, í samráði við Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að endurbæta umbúðamerkingar Kötlu rjómalíkis þar sem ofnæmis- og óþolsvaldur er ekki skýrt merktur á umbúðum vörunnar.



 

Efni:  Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur – innihaldsefni úr mjólk.

Varan:  Katla rjómalíki, 400 ml.  Strikanúmer 5690591150328.

Framleiðandi:  Eðal ehf. Katla, Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.

Dreifing:  Matvöruverslanir um land allt.


Samkvæmt innihaldslýsingu inniheldur varan kaseinat (e. caseinate) en ekki kemur fram að innihaldsefnið er úr mjólk.   Mjólk og mjólkurafurðir eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir mjólk eða mjólkurafurðum.

Fyrirtækið hefur fengið frest til 13. desember 2010 til að endurmerkja umbúðir og skal vanmerkt vara ekki vera á markaði eftir þennan tíma.


Nánari upplýsingar:

    Eðal ehf. Katla, sími 567 4422.

    Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, sími 411 1111.

/rvk.is


Getum við bætt efni síðunnar?