Fara í efni

Vanmerktir ofnæmisvaldar í samlokum Dagnýjar og co

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af samlokum frá vörumerkinu Dagnýju og co. Merkimiðum var víxlað með þeim afleiðingum að hvorug varan er með rétta innihaldslýsingu, m.a. á ofnæmis- og óþolsvöldum, auk þess að önnur er ranglega merkt VEGAN. Fyrirtækið Álfsaga ehf. er að innkalla vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi lotu:

  • Vöruheiti: Ranglega merkt „Veggies with avocado humus“
  • Ofnæmis- og óþolsvaldar í ranglega merktri vöru: sesamfræ, sojakyrni, hafraflögur, egg, mjólkurafurðir og sinnepsduft
  • Lotunúmer: L346
  • Síðasti notkunardagur: 15.12.19

  • Vöruheiti: Ranglega merkt „Reykjavik fitness (Veggie)“
  • Ofnæmis- og óþolsvaldar í ranglega merktri vöru: hnetusmjör
  • Lotunúmer: L346
  • Síðasti notkunardagur: 15.12.19

  • Dreifing: Iceland, Krónan,10-11, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Kjarval, Nóatún, Hagkaup, Olís, N1 og Super 1
  • Framleiðandi: Álfasaga ehf., Eyrartröð 2A, 220 Hafnarfirði

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru með ofnæmi. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og er með ofnæmi eða óþol eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir fyrirtækið Álfasaga ehf. í síma 553 4060.

Ítarefni

Uppfært 13.12.19 kl. 16:39


Getum við bætt efni síðunnar?