Fara í efni

Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í pasta sósu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurum stöðvun á sölu og innköllun frá neytendum eftirfarandi matvæli: 

  

  • Vörumerki:  Francesco Rinaldi. 
  • Vöruheiti:  Original Traditional Pasta Sauce. 
  • Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  LiDestri Foods, Inc. í Bandaríkjunum.  Innflutt til Íslands og dreift af Kaupási hf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík. 
  • Auðkenni/skýringartexti:    Á umbúðum vörunnar er álímdur miði frá Kaupási hf. með upplýsingum um innihald hennar en á miðann vantar að tilgreina að hún inniheldur mjólkurafurð.   Varan er hins vegar rétt merkt frá framleiðanda.  Mjólk og mjólkurafurðir eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Strikanúmer 077644301329.   
  • Laga- /reglugerðarákvæði:  5. og 13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, sbr. og viðauka við reglugerð nr. 631/2010 um breytingu á reglugerð nr. 503/2005.  8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 
  • Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Nóatúns, Krónunnar og Kjarvals um land allt.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?