Fara í efni

Vanmerktir ofnæmisvaldar í falafel (hveiti og sesam)

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Alibaba falafel-vefju vegan vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda (hveiti og sesamfræ) sem Shams ehf. framleiðir. Fyrirtækið hefur, með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs, innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin nær til allra framleiðslulota og best fyrir dagsetningar.

Vörumerki: Alibaba

Vöruheiti: Falafel vefja - vegan

Framleiðandi: Shams ehf.

Lotunúmer/best fyrir dagsetning: Allar lotur / dagsetningar

Dreifing: Nettó Borgarnes, Búðakór, Granda, Grindavík, Hafnarfirði, Höfn, Hrísalundi, Húsavík, Ísafirði, Krossmóa, Lágmúla, Mjódd, Nóatúni, Selfossi, Sunnukrika, Iceland Engihjalla, Kjörbúðin Blönduósi, Dalvík, Ólafsfirði, Neskaupstað, Sandgerði, Bolungarvík, Hellu, Grundarfirði, Þórshöfn, Siglufirði, Djúpavogi, Fáskrúðsfirði, Seyðisfirði, Skagaströnd, Krambúðin Skólavörðustíg, Firði, Búðardal, Flúðum, Borgartúni, Hjarðarhaga og Samkaup Strax Suðurveri.

 falafel

Neytendur, sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi  eða óþol fyrir hveiti eða sesam, geta skilað henni. Varan er skaðlaus fyrir þá sem eru ekki með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti eða sesam. Nánari upplýsingar hjá fyrirtækinu Shams í síma 8684616 eða á netfanginu bakarialeppo@gmail.com

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?