Vanmerktar kökur
Innkallanir -
27.11.2025
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um vanmerktar Sörur frá Sætum syndum en það vantaði i innihaldslýsingar að kökurnar innihalda sojalesitín og laktósa sem eru ofnæmis- og óþolsvaldar ásamt kaffi. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar,
Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF).
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vörumerki: Sætar Syndir
- Vöruheiti: Sörur
- Framleiðandi: Sætar Syndir
- Pökkunardagsetning: 12/11/2025
- Best fyrir dagsetning: 12/02/2025
- Nettó þyngd: 300g
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Strikanúmer: 5694230259137
- Dreifing: Krónan Akrabraut, Akureyri, Bildshöfða, Borgartún, Keflavík, Flatahraun, Grafarholt, Grandi, Lindir, Mosfellsbær, Norðurhella, Selfoss, Vallakór og Skeifan

Þeir sem eiga umrædda vöru enn þá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða
skila til Sætra Synda, Hlíðarsmára 19 gegn fullri endurgreiðslu