Fara í efni

Vanmerkt súkkulaðikaka

Matvælastofnun vill vara neytendur sem eru með ofnæmi fyrir möndlum við einni framleiðslulotu af Brikk súkkulaðiköku. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna vegna vanmerkinga á ofnæmis-og óþolsvalda í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF). Villandi merkingu um að varan geti innihaldið snefil af möndlum er hættuleg fyrir þá sem eru með ofnæmi fyrir möndlum.

Einungis er um að ræða innköllun á eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: BRIKK
  • Vöruheiti: Súkkulaðikaka
  • Framleiðandi: Brikk Eldhús ehf, 491019-0930
  • Best fyrir dagsetning: 2/9/26
  • Nettó þyngd: 650g
  • Strikanúmer: 5694230457311
  • Dreifing: Verslanir Krónunar (Mosfellsbæ, Grafarholt, Bíldshöfði, Lindir, Akrabraut,
    Flatarhraun, Norðurhella, Austurver, Skeifan, Borgartún, Hallveigarstígur, Grandi,
    Fitjar, Selfossi). Verslanir Hagkaup (Skeifan, Garðabæ, Spöng)

Neytendur með ofnæmi fyrir möndlum eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga eða
skila henni til Brikk Eldhús ehf, Dalvegi 32b, 201 Kópavogi.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?