Fara í efni

Vanmerkt próteinstykki (jarðhnetur og soja)

Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Barabells Coco Choco sem Core ehf. flytur inn. Getur innihaldið aðrar vörutegund sem inniheldur jarðhnetur og soja sem er ofnæmis- og óþolsvaldar. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF).

Tilkynning barst til Íslands í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

• Vörumerki: Barebells
• Vöruheiti:. Barebells Coco Choco
• Framleiðandi: Barebells
• Framleiðsluland: Svíþjóð
• Strikanúmer: 7340001805383
• Nettóþyngd: 55g
• Lotunúmer: L6055-R
• Best fyrir dagsetningar: 24.02.2027
• Dreifing: Bónus, Krónan, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin,10-11, Hagkaup, N1 og Olís.

Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða
skila til Core heildsölu ehf, Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur gegn fullri endurgreiðslu.  

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?