Fara í efni

Vanmerkt eggjaduft í vöffludeigi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir eggjum við neyslu á „Hrista og baka vöfflum“ frá Kötlu. Varan inniheldur eggjaduft sem er ekki merkt sem ofnæmis- og óþolsvaldur í innihaldslýsingu vörunnar. Katla matvælaiðja ehf hefur ákveðið að innkalla vöfflurnar af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við: 

  • Vöruheiti: Hrista og baka vöfflur
  • Strikanúmer: 5690591155453
  • Nettómagn: 330 g
  • Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar
  • Framleiðandi: Katla
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifing: Allar helstu matvöruverslanir á landinu

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir eggjadufti. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir eggjadufti eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til Kötlu, Kletthálsi 3, 110 Reykjavík, milli 8-16 alla virka daga.

Hrista og baka vöfflur

Nánari upplýsingar fást hjá gæðastjóra Kötlu í síma 510-4435 eða á netfanginu: rannsokn2@katla.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?