Fara í efni

Tréspíri í vodka

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hafa borist upplýsingar í gegnum viðvörunarkerfið RASFF (Rapid Alert System for Food and Feed) um að vodka sem framleitt er í Þýsklandi innihaldi metanól (tréspíra) sem er mjög eitrað. Verksmiðjunni hefur verið lokað. ÁTVR hefur ekki flutt inn þessar tegundir.

Matvælastofnun beinir því til neytenda sem kunna að hafa keypt og eiga flösku af þessum tegundum að tilkynna það viðkomandi heilbrigðiseftirliti og hella innihaldinu niður.

Metanól eða tréspíri er mjög hættulegt og veldur blindu, jafnvel dauða.

Tegundir: V24 Original Vodka, Premium Cosmos Vodka og Vodka AntiVirus
Framleiðandi: Bärenkrone GmbH & Co í Þýskalandi

 


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?