Fara í efni

Sykur í sykurlausu sælgæti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af sykurlausum svörtum Opal frá Nóa og Síríusi vegna mistaka við pökkun.  Í sykurlausan svartan Opal var blandað rauðum Opal með sykri. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík stöðvað sölu vörunnar og innkallað frá neytendum.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Opal
  • Vöruheiti: Sykurlaus Opal með saltlakkrísbragði
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 12.01.2024
  • Lotunúmer: L1932
  • Nettómagn: 100 g
  • Strikamerki: 5690576303244
  • Framleiðandi: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir um land allt.

Neytendum sem keypt hafa vöruna, sérstaklega þeir sem þurfa að varast sykur, er bent á að neyta hennar ekki, farga eða  skila vörunni til næstu verslunar.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?