Sýklalyfjaónæm salmonella í fæðubótarefni
Innkallanir -
03.03.2026
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá FDA Matvæla-og lyfjaeftirliti Bandaríkjana um innköllun á Rosabella Moringa fæðubótaefni vegna sýklalyfjaónæmra salmonellu sem greindist í vörunni. Varan er seld í netsölu m.a. til Íslands. Allar lotur með best fyrir dagsetningu frá 03/2027-11/2027 eru innkallaðar.
Sjá nánar:
- Vöruheiti: Rosabella
- Vörulýsing: Moringa hylki
- Framleiðandi: Ambrosia, New York
- Best fyrir dagsetningar: Allar lotur með best fyrir dagsetningu frá 03/2027-11/2027
- Dreifing: Selt á netsíðum eBay, TikTok, Amazon, Shein, Etsy, og Tryrosabella.com

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga. Veikindi koma eftir 12-72 klukkustundir eftir neyslu og eru í 4 til 7 daga að ganga yfir. Einkenni lýsa sér í niðurgangi, hita og magakrömpum. Ung börn og eldri eru viðkvæmari fyrir sýkingu.