Styrkleiki innihaldsefnis í fæðubótaefnum of hátt.
Innkallanir -
18.06.2025
Matvælastofun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af Kraft-Test Booster fæðubótaefni frá Ingling ehf. vegna magn af svörtum piparextrati sem er yfir mörkum þess sem talið er öruggt inntöku. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Ingling.
- Vöruheiti: Kraftur-Test Booster.
- Geymsluþol: Best fyrir 31. desember 2026.
- Framleiðsludagsetningar: 30. apríl 2025 og 2. júní 2025.
- Strikamerki: 5694230714056.
- Framleiðandi: Ingling ehf.
- Framleiðsluland: Ísland.
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Ingling ehf, Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbæ.
- Dreifing: Vefverslun Ingling.is, Mamma veit best, Heilsuver og Kush.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga
eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.