Skordýr í frosnum hindberjum
Innkallanir -
14.08.2026
Matvælastofnun varar neytendur við einni lotu af Grön balance frosnum hindberjum vegna mögulegra skordýra í vörunni. Krónan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, hefur innkallað vöruna af markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Grön balance
- Vöruheiti: Hindbær dybfrossen
- Nettómagn: 150 g
- Framleiðandi: Dagrofa ApS
- Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
- Framleiðsluland: Pólland
- Best fyrir dagsetning: 19.03.2028
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Verslanir Krónunnar
Neytendur sem hafa keypt vöruna er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn endurgreiðslu.
