Fara í efni

Skordýr í döðlum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli á að skordýr hafa fundist í Sólgæti döðlum frá Heilsu ehf. Fyrirtækið hefur innkallað döðlurnar af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: 

  • Vörumerki: Sólgæti
  • Vöruheiti: Döðlur
  • Strikanúmer: 5024425287810
  • Nettómagn: 500 g
  • Best fyrir: 15.08.2019
  • Lotunúmer: 7227
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Nettó, Kjörbúðin Blönduósi, Seljakjör, verslanir Heilsuhússins, Fjarðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar og Pétursbúð

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 533 3232 og á netfanginu heilsa@heilsa.is.

Ítarefni

Frétt uppfærð 14.02.19 kl. 11:29


Getum við bætt efni síðunnar?