Skordýr í chia fræjum
Innkallanir -
26.08.2026
Matvælastofnun vara neytendur við einni framleiðslulotu af Trevissan chia fræjum sem Costco flytur inn og selur í sinni verslun vegna skordýra sem fanns i einni krukku. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vörumerki: Trevissan
- Vöruheiti: Chia Seeds
- Framleiðandi: Sænskt fyrirtæki
- Uppruni: Paraguay, Argentina or Brazil.
- Lotunúmer: CH268X
- Nettóþyngd: 1,400 g
- Geymsluþol: 19.03.2027
- Strikamerki: 8410770912342
- Dreifing: Costco heildsala á Íslandi

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna geta skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Costco í Kauptúni 3, Garðabæ.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlitsins
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook