Fara í efni

Salmonella í kryddi

Matvælastofnun varar við neyslu á Timur berry kryddi frá Lifa ehf. (selt í Kokka, Laugarvegi 47) þar sem Salmonella greindist í kryddinu. Fyrirtækið hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað vöruna.

Innköllun einskorðast við eftirfarandi vöru:

  • Vörumerki: Medelys
  • Vöruheiti: Timur berry (Zanthoxylum armatum) / Baie De Timur Nepal
  • Best fyrir dagsetning: 05.05.2030
  • Nettómagn: 500 g
  • Framleiðandi: Medelys
  • Framleiðsluland: Nepal
  • Dreifing: Lifa ehf., Laugarvegi 47, 101 Reykjavík / Kokka, Laugarvegi 47.

Neytendum sem hafa verslað vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila í viðkomandi verslun.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?