Fara í efni

Salmonella í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi frá Matfugli merktum Ali, Bónus eða FK vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Lotunúmer: 011-21-34-5-29 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar, marineraðarkjúklingabringur),
  • Pökkunardagur: 29.09.2021 - 01.10.2021
  • Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Kassinn.

Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?