Fara í efni

Salmonella greinist í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.


 

Grunur er um salmonellusmit í einum kjúklingahópi frá Reykjagarði sem framleiðir Holtakjúkling. Salmonella hafði ekki greinst í þeim sláturhópi fyrir slátrun við reglubundið eftirlit stofnunarinnar. Sýnin hafa verið send til sýkladeild Landspítalans til staðfestingar og munu niðurstöður liggja fyrir í lok vikunnar.

Reykjagarður hefur innkallað afurðir með rekjanleikanúmerið 002-10-41-3-05 í varúðarskyni. Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila vörum þar sem þær voru keyptar eða til Reykjagarðs hf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.


Tekið skal fram að ef áprentuðum leiðbeiningum um eldun á umbúðum er fylgt, er ekki talin hætta á að fólki geti smitast af salmonellu ef kjarnhiti nær 72°C.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?