Óvissa um örveruástand á nautamaga
Innkallanir -
19.05.2026
Matvælastofnun varar við neyslu á Cow Stomach Abodi (frosin nautamagi) vegna óvissu um örveruástand, sem Fiska.is flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið innkallað vöruna.
Tilkynningin barst til Íslands í gegnum hraðviðvörunarkerfi RASFF frá Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Innköllun nær yfir allar framleiðslulotur af þessum matvælum.
- Vörumerki: Afroase
- Vöruheiti: Cow Stomach Abodi
- Best fyrir: Allar dagsetningar
- Nettóþyngd: 1 kg
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Framleiðandi: Asia Express Food, Kilbystraat 1, 8263 CJ Kampen,
- Framleiðsluland: Holland.
- Dreifing: verslun Fiska.is

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.