Óskoðuð matvæli (kökur) úr dýraríkinu
Matvælastofnun upplýsir um innköllun á einni framleiðslulotu af kínverskum kökum Popping candy macaron biscuit strawberry flavor sem fyrirtækið Fiska.is flytur inn en kökurnar fóru inn í Evrópumarkað án þess að hafa farið í gegnum landamæraeftirliti í Hollandi varandi dýraafurðir á leið sinni til Íslands. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF).
Tilkynning barst til Íslands í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu.
- Vöruheiti: Popping candy macaron biscuit strawberry flavor
- Vörumerki: GANGFU
- Framleiðandi: Fujian Gangfu Lebao Food Development Co., Ltd.
- Framleiðsluland: Kína
- Geymsluþolsdagsetning: 15.03.2027
- Strikanúmer: 5060886820975
- Nettóþyngd: 132g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreyfing: Varan var seld í verslun Fiska á Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi

Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna og eiga hana ennþá til er bent á að farga vörunni eða skila í verslun Fiska Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Fiska.is
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook