Óöruggt hráefni í kökudropum
Innkallanir -
06.11.2026
Matvælastofnun varar við Bónus Vanilludropum frá H. Berg ehf vegna gæðamála. Möguleiki er á að hráefni sem notað var við framleiðsluna uppfyllti ekki kröfur sem gerðar eru til matvæla. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað allar framleiðslulotur sem voru á markaði.
Innköllunin á við allar framleiðslulotur:
- Vörumerki: Bónus
- Vöruheiti: Vanilludropar
- Nettómagn: 50 ml (glas), 500 ml (brúsi) og 1 l (brúsi)
- Strikamerki: 5694311960143, 5694311960341, 5694311960150
- Best fyrir dagsetningar: Allar
- Lotunúmer: Öll
- Framleiðandi: H-Berg ehf. í Hafnarfirði
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Bónuss um land allt.

Viðskiptavinum Bónus sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að nota hana og er bent á að þeir geta skilað
henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.