Fara í efni

Óneysluhæfar rúsínur

Matvælastofnun upplýsir um innköllun á Bakalland sultan rúsínum vegna óeðilegrar lyktar og bragðs sem Market ehf. flytur inn. Fyrirtækið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness-HEF hefur innkallað vöruna.

Tilkynningin barst til Íslands í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi lotur (uppfært):

  • Vörumerki: Bakalland
  • Vöruheiti: Sultana raisins / Sultan rúsínur
  • Framleiðandi: Food Well Sp. z.o.o.
  • Innflytjandi: Market ehf.
  • Framleiðsluland: Pólland.
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetning: 0002490513 / 31/08/2026.
  • Dreifing: Euro Market Smiðjuvegi, Hamraborg og Skakkholti 

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila í verslun.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?