Fara í efni

Ómerktir ofnæmisvaldar í sósu með heitreyktum laxabita

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir eggjarauðum, sinnepi, hveiti og/eða selleríi við neyslu á „Ópal heitreyktum laxabita m/muldum pipar“ frá Ópal Sjávarfangi. Sósan sem fylgir laxinum inniheldur ofangreinda ofnæmis- og oþolsvalda en innihald sósunnar er ekki tilgreint á umbúðum. Dreifing/sala á vörunni hefur verið stöðvuð og stendur endurmerking yfir. 

Nánar um vöruna: 

  • Vöruheiti: Ópal heitreyktur laxabiti m/muldum pipar
  • Framleiðandi: Ópal Sjávarfang
  • Lotunúmer: 013019
  • Dreifing: Verslanir Nettó um allt land, verslanir Hagkaupa á höfuðborgarsvæðinu, 10-11 í Austurstræti, Iceland í Engihjalla og Krambúðin, Firði 

Laxabitar

Neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir eggjarauðum, sinnepi, hveiti og/eða selleríi geta skilað vörunni til Ópals Sjávarfangs gegn endurgjaldi. Nánari upplýsingar veitir Linda í síma 517-6630 / 864-8295.

Varan er skaðlaus þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir ofangreindum ofnæmisvöldum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?