Fara í efni

Ómerktar möndlur og hnetur í sítrónufromage

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Blomsterbergs sítrónufromage fyrir þá sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir möndlum eða hnetum, þ.m.t. herslihnetum. Upplýsingar um innköllunina bárust í gegnum RASFF viðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður. Krónan hefur innkallað vöruna úr öllum verslunum sínum, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á við allar lotur og best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: Blomsterbergs
  • Vöruheiti: Blomsterbergs citronfromage, 116 g
  • Strikanúmer: 5420047405739
  • Nettómagn: 116 g
  • Lotunúmer: Öll lotunúmer
  • Best fyrir: Allar dagsetningar
  • Framleiðandi: Food N Joy SA
  • Framleiðsluland: Belgía
  • Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir hnetum eða möndlum og
afurðum úr þeim eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?